KLÍNIKSjúkraþjálfun
Rannsóknir og fræðsla

Fróðleikur frá Klínik

Skrifað af sjúkraþjálfurum okkar, byggt á gagnreyndri þekkingu.

Greinar

Allar greinar

Tilkynningar og stuttar greinar

Fróðleiksmolar

Skruna til hægri
Tilkynning

Brjósklos — fyrirlestur hjá Klínik

Fimmtudaginn 16. maí 2013 var haldinn fyrirlestur um hryggþófaröskun/brjósklos í Klínik Sjúkraþjálfun. Farið var yfir algengi bakverkja, anatomiu hryggsúlunnar, útskýringu á hugtökum, einkenni, batahorfur, áhættuþætti, sjálfshjálp og meðferð sjúkraþjálfara. Hvetjum þá sem hafa áhuga á slíkri fræðslu að skrá sig á næsta fyrirlestur.

Tilkynning

Brjósklosfyrirlestur — mars 2012

Farið var yfir ýmis atriði tengd hryggþófaröskun og brjóskloseinkennum: algengi bakverkja, anatomia hryggsúlunnar, samsetning hryggþófans, einkenni, batahorfur, áhættuþættir, sjálfshjálp og meðferð sjúkraþjálfara.

Fræðsla

Höfuðverkur

Höfuðverkur er algengur og er talið að allt að 70–80% fólks fái höfuðverki einhverntímann á lífsleiðinni. Algengustu ástæður eru: spennuhöfuðverkur tengdur vöðvakerfinu, höfuðverkur tengdur efstu hálsliðum (C1–C2), migrenishöfuðverkur tengdur æðakerfinu, og óljósar ástæður sem þurfa frekari athygli.

Fræðsla

Meðhöndlun við hálsrígi

Sjúkraþjálfari metur einkenni hálsrígs með ítarlegri skoðun og ákveður í kjölfarið hvaða meðferðasniði hann beitir. Meðal meðferðarsniða sem koma til greina er mjúkpartameðferð, liðlosun, hnykkingar, liðkandi æfingar, rafmagnsmeðferð, hita/kulda meðferð og fræðsla um rétta líkamsbeitingu.

Fræðsla

Hnykkingar framkvæmdar af sjúkraþjálfara

Hnykkingar (manipulation) er eitt meðferðasniða sem er hægt að nota til að hjálpa skjólstæðingum að ná bata — rannsóknir síðustu ára styðja þetta meðferðarsnið. Hjá Klínik er lögð áhersla á heildræna stoðkerfismeðferð þar sem hnykkingar eru einungis hluti af meðferðinni þegar við á.

Fræðsla

Sjúkraþjálfari — er það rangt nafn?

Heiti sjúkraþjálfara þekkja flestir hér á Íslandi en það er samt spurning hvort sjúkraþjálfari sé rangnefni yfir það sem við sem störfum í þessari grein erum að gera. Hugsanlega væri réttast að kalla starfsheitið stoðkerfisfræðingur — þar sem við erum að vinna með stoðkerfið og þeir sem hafa sérmenntun í faginu væru þá sérfræðingar í stoðkerfinu.

Hafðu samband

Tilbúinn að losna við verkinn?

Engin beiðni frá lækni þarf. Við svörum fljótt.

Mánudaga – fimmtudaga

08:00 – 17:00

Föstudaga

08:00 – 16:00

Tímapantanir

445 4404